Aftur met hjá Porsche

Nýr Panamera, fjórhjóladrifinn og í tvinnútfærslu, verður senn frumsýndur hér …
Nýr Panamera, fjórhjóladrifinn og í tvinnútfærslu, verður senn frumsýndur hér á landi.

Porsche sló enn eitt sölumetið á nýliðnu ári, 2016. Þá afgreiddi sportbílaverksmiðjan í Stuttgart 237.778 bíla til kaupenda um heim allan sem er 6% aukning frá 2015 sem einnig var metár.

Drifkraft aukningarinnar er að finna á mörkuðum í Evrópu, Bandaríkjunum og Kína. Leiddu sportjeppinn Macan og nýi sportbíllinn 718 Boxster söluaukninguna. Einnig munaði mikið um hinn nýja Panamera.

„Það er ljóst að sá styrkur sem liggur í breidd bílalínunnar er lykillinn að metsöluaukningningu síðasta árs,“ segir Oliver Blume, forstjóri Porsche.

„Porsche nafnið er samnefnari yfir tilfinningu og gæði. Og sú jákvæða þróun sem endurspeglast í metsölu síðasta árs er staðfesting á óbilandi ástríðu viðskiptavina okkar. Engu að síður er það sjónarmið okkar að sérstaða Porsche á markaðnum sé jafn mikilvæg og sölutölurnar á hverjum tíma. Það er ljóst að sterk ímynd vörumerkisins og þéttriðið net af kappsfullu sölufólki er sá grundvöllur sem við munum byggja á til framtíðar,“ segir Oliver. 

Söluaukning 718 Boxter á nýliðnu ári nam 9% á milli ára, en nýjum eigendum voru afhent  12.848 eintök. Sala  Porsche 911 jókst um 2% og fór í 32.408 eintök. Þá styrkir Macan enn stöðu sína sem mest seldi bíllinn frá Porsche með 95.642 eintaka sölu, sem er aukning um heil 19%.

Af helstu markaðssvæðum má nefna að vöxturinn er 5% bæði í Evrópu og á ört vaxandi Bandaríkjamarkaði, með sölu 54.280 eintökum. Þá var Kína enn og aftur sterkasta markaðssvæði Porsche með 12% aukningu og sölu á alls 65.246 bílum.

mbl.is