Forsala hafin á Skoda Kodiaq

Jeppinn Kodiaq sver sig inn í Skoda-fjölskylduna.
Jeppinn Kodiaq sver sig inn í Skoda-fjölskylduna.

Fyrsti jeppinn frá Skoda, Kodiaq sem má sjá á meðfylgjandi mynd, er kominn í forsölu hjá bílaumboðinu Heklu.

Bíllinn ber sterk einkenni Skoda-fjölskyldunnar, einkum Superb og Octavia, og sé mið tekið af vinsældum Skoda á Íslandi og vinsældum jeppa almennt hérlendis er ekki ósennilegt að bíllinn veki áhuga væntanlegra bílakaupenda.

Skoda Kodiaq var kynntur fyrir blaðamönnum í nóvember síðastliðnum á eynni Mallorca og ítarleg reynsluakstursumfjöllun mun birtast í næsta tölublaði Bílablaðs Morgunblaðsins, í febrúar.

Jeppinn Kodiaq sver sig inn í Skoda-fjölskylduna.
Jeppinn Kodiaq sver sig inn í Skoda-fjölskylduna.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: