Árleg jeppasýning Toyota Kauptúni verður að þessu sinni haldin í samstarfi við Ferðafélag Íslands og Ellingsen laugardaginn 25. febrúar kl. 12 til 16.
Þetta er áttunda árið í röð sem Toyota Kauptúni efnir til jeppasýningar og er sýningin fyrir löngu orðin fastur viðkomustaður jeppa- og útivistarfólks.
Á jeppasýningunni verður Hilux sýndur með nýjum Invincible aukahlutapakka sem fylgir öllum nýjum Hilux án aukakostnaðar. Kynnt verður tilboð á Adventure aukahlutapakkanum fyrir Land Cruiser 150 og sjá má RAV4 í fjölmörgum útfærslum. Breyttir jeppar verða á útisvæði og í sýningarsal. Ýmis búnaður fyrir útivistina verður einnig á jeppasýningunni t.d. fjórhjól, sexhjól, Buggy bílar, fjallaskíði, Garmin GPS græjur og svo Brenderup kerrur til að flytja tækin.
Ferðafélag Íslands, sem á 90 ára afmæli í ár verður sérstakur gestur sýningarinnar ásamt samstarfsaðilum sínum. Ferðafélagið mun kynna starfsemi sína og saga félagsins verður rifjuð upp.