Með fangið fullt af verðlaunum

Nýsmíðaðir Mini bílar í bílsmiðju BMW í Oxford, vestur af …
Nýsmíðaðir Mini bílar í bílsmiðju BMW í Oxford, vestur af London. AFP

Þýski bílaframleiðandinn BMW gerði það gott á nýliðnu ári þegar viðurkenningar eru annars vegar. Hlaut hann alls 55 mismunandi innlend og alþjóðleg verðlaun fyrir gæði, nýsköpun á tæknisviðinu, hönnun, nettengingu og gagnvirkni svo og sjálfbærni.

Í öllum dómnefndum sitja sérfræðingar hver á sínu sviði auk bílablaðamanna. Eftirtektarverðust eru verðlaunin „World Car Awards“, „World Luxury Car“ og „Best Car Awards“ sem féllu í skaut flaggskipinu BMW 7 Series, ásamt svo Gullna stýrinu (Golden Lenkrad) fyrir rafmagnsbílinn BMW i3. Í þeim flokki komu BMW M2 Coupé og hinn nýi BMW 5-series stallbakur einnig til greina enda þótt sá síðastnefndi sé ekki enn kominn á markað.

Dómnefnd og lesendur vikuritsins Auto Motor und Sport sæmdu BMW þrennum verðlaunum á árinu. Flaggskipið 7-series í flokki lúxusbíla, BMW 5-series stallbakinn í flokki meðalstórra bíla og BMW X1 í flokki smájeppa voru allir kjörnir bestu bílarnir í viðkomandi flokkum. Þeir sem greiddu 5-seríu stallbaknum atkvæði sitt voru greinilega sannfærðir um ágæti hans því hann er ekki enn kominn í sölu.

Hið sama er að segja um sameiginlega dómnefnd Auto Bild og Computer Bild því hún kaus BMW 5 stallbakinn best tengda bílinn 2016. Þá kusu lesendur tímaritsins Handelsblatt BMW X5 fyrirtækjabíl ársins í flokki jeppa. Tímaritið kallaði til um 250 stjórnendur í fyrirtækjum og bað þá að gera samanburðarrannsókn til að finna eftirlætisbílinn og varð 730d langefstur á þeim lista.

Auk þessara verðlauna hlaut BMW X1 hönnunarverðlaun hjá German Design Counsil fyrir ytra útlit og hönnun farþegarýmisins, Chicago Museum og Design útnefndi bæði X4 og X6 bestu ferðabílana og í Ástralíu var BMW 1 Series kjörinn besti bíll Ástralíu hjá Royal Auto National.

Loks má nefna að í samantekt BMW yfir viðurkenningar á árinu voru þrjár BMW-gerðir kjörnar bestu bílakaupin á árinu, hver í sínum flokki, aðrir voru kjörnir bestu bílarnir í sportbílaflokki, enn aðrir bestu akstursbílarnir í flokki fjórhjóladrifinna bíla og svona mætti áfram lengi telja. agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: