Jaguar I-Pace frumekið í London

Jaguar I-Pace við ólympíuleikvanginn í London.
Jaguar I-Pace við ólympíuleikvanginn í London.

Fagurrauðum Jaguar I-Pace var ekið í og við ólympíuleikvanginn í London í gær og var það í fyrsta sinn sem honum var ekið úti á meðal almennings.

I-Pace er fyrsti rafmagnsbíllinn sem Jaguar þróar og verður hann frumsýndur í nær endanlegri mynd seint á þessu ári. Hann fer svo á almennan markað um mitt ár 2018.

Í bíltúrnum í gær var fjöldi mynda tekinn sem gefa góða vísbendingu um það hvernig bíllinn muni líta út á endanum. Hér er um að ræða fimm manna sportjeppa sem Ian Callum, framkvæmdastjóri hönnunardeildar Jaguar, segir að muni brjóta blað í hönnun rafknúinna bíla í þessum flokki.

Jaguar I-Pace við ólympíuleikvanginn í London.
Jaguar I-Pace við ólympíuleikvanginn í London.


„Viðtökurnar sem við höfum fengið á sýningum hafa komið okkur ánægjulega á óvart og vorum við spennt fyrir að sýna fólki bílinn í akstri undir beru lofti. Það var mjög ánægjuleg upplifun að sjá viðbrögð almennings þegar fólk gat séð hann í raun, áttað sig á stærð hans og útliti og borið hann saman við aðra bíla í nágrenninu. Gærdagurinn fullvissaði okkur um að við erum á réttri leið,“ segir Callum í tilkynningu.

Jaguar I-Pace er hraðskreiður rafknúinn fjölskyldubíll sem er aðeins 4 sekúndur að ná 100 km hraða. Orkuna fær bíllinn frá 90kWh litíumjóna rafhlöðu sem hefur um 500 km drægni. Hægt er að endurhlaða geyminn að 80 prósentum á aðeins 90 mínútum. Undir vélarhlífinni er fremur lítill og léttur rafmótor sem skila 400 herstöflum og 700Nm togi til hjólanna til að hámarka aksturseiginleika þessa aldrifna bíls.

Jaguar I-Pace við ólympíuleikvanginn í London.
Jaguar I-Pace við ólympíuleikvanginn í London.


Að sögn Callum hefur I-Pace öll kjarnaeinkenni annarra bíla frá Jaguar sem eru snerpa, þægindi, aksturseiginleikar, ánægja og vandaður frágangur. „I-Pace mun gleðja alla sem prófa bílinn þegar hann kemur á markað um mitt næsta ár.“

mbl.is