Ekið með Subaru á hjara veraldar

Í ársbyrjun var alþjóðlegum hópi blaðamanna boðið til Norður-Finnlands, nánar tiltekið til bæjarins Rovaniemi, til að prófa ýmsar gerðir Subaru við ýmsar aðstæður sem þó áttu það sameiginlegt að vera ýmist snævi þaktar eða ísi lagðar.

Bílarnir áttu það aftur á móti sammerkt að standa sig með sóma við kaldar og krefjandi aðstæður.

Inni í skógi, eða á braut í „drifti“

Bílarnir voru teknir til kostanna við mismunandi aðstæður, allt eftir gerð bílsins. Subaru Forrester og Outback fengu að kynnast ójöfnum skógarstígum í bland við akstursbrautir en sportbílarnir Subaru WRX og BRZ fengu að spretta úr spori á akstursbraut sem og á hringlaga driftbraut, þar sem undirritaður kynntist því af eigin raun að það er snúnara en maður kann að halda að keyra bílinn áfram í jöfnu skriði. Talsvert mikið snúnara, meira að segja.

Annars segja myndirnar meira en mörg orð og því rétt að taka ekki meira pláss undir texta en nú þegar er orðið.

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: