Mercedes-Benz trukkar sýndir á Fosshálsinum

Arocs SLT er öflugasti dráttarbíll sem framleiddur er af Mercedes-Benz.
Arocs SLT er öflugasti dráttarbíll sem framleiddur er af Mercedes-Benz.

Sýning á Mercedes-Benz trukkum verður haldin í höfuðstöðvum Mercedes-Benz atvinnubíla að Fosshálsi 1 næstkomandi laugardag, 22. apríl, klukkan 12 til 16.

„Við verðum með margar gerðir öflugra Mercedes-Benz vörubíla til sýnis og má þar nefna fjögurra öxla Arocs vörubíla, Actros flutninga- og dráttarbíla, Antos og Arocs krókheysisbíla og Atego sendibíla. Nýr Meiller malarvagn verður á staðnum og auk þess verðum við með nýjan fjögurra öxla vörubíl með Meiller palli og munum bjóða upp á reynsluakstur á honum,“ segir Eiríkur Þór Eiríksson hjá Mercedes-Benz atvinnubílum í tilkynningu.

Stjarna sýningarinnar er þó öflugur Mercedes-Benz Arocs SLT (Schwer Last Transport) sem er öflugasti dráttarbíll sem framleiddur er af Mercedes-Benz. Bíllinn er framleiddur fyrir þungaflutninga og sá sem verður á sýningunni er öflugasta útgáfan sem er með uppgefna 250 tonna dráttargetu. Hann er sértaklega fluttur inn fyrir sýninguna en enginn slíkur er skráður hér á landi.

Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi atvinnubíla í heiminum og njóta þeir vinsælda hér eins og víða um heim. „Mercedes-Benz atvinnubílarnir eru fjölbreyttir og uppfylla ólíkustu þarfir við ýmsar aðstæður, allt frá minnstu sendibílum  upp í stærstu vöru- og hópferðabíla,“ segir Eiríkur ennfremur.

mbl.is