Met í sölu húsbíla í Svíþjóð

Svíar vilja húsabíla sem aldrei fyrr.
Svíar vilja húsabíla sem aldrei fyrr. mbl.is/Jim Smart

Aldrei hafa verið jafn margir húsbílar skráðir í Svíþjóð og nú. Alls eru 87 þúsund húsbílar skráðir í landinu og nýskráðum hefur fjölgað um 22% milli ára. Í Svíþjóð er mesta fjölgun húsbíla í löndum innan Evrópu, segir Tomas Haglund við Aftonbladet

Hann segir aukninguna hreint út sagt ótrúlega. Hann bendir á að margar fjölskyldur kjósi að fjárfesta í húsbíl svo þær geti ferðast um landið saman í stað þess að eiga sumarhús. Hann segir jafnframt að bílarnir séu eins misjafnir og þeir eru margir og verðbilið og lúxusinn ólíkur.  

mbl.is