Benni frumsýnir Porsche 718

Porsche 718 Cayman verður frumsýndur á sportbílasýningunni hjá Bílabúð Benna …
Porsche 718 Cayman verður frumsýndur á sportbílasýningunni hjá Bílabúð Benna á morgun.

Áhugamenn um sportbíla fá eitthvað til að dást að á morgun, laugardag, því þá fagnar  Bílabúð Benna, umboðsaðili Porsche á Íslandi, sumarkomunni með Porsche sportbílasýningu.

Hápunktur sýningarinnar er frumsýning á Porsche 718 Cayman. Þá mun eldri kynslóðum af Porsche 911 verða stillt upp á sýningarsvæðinu. Þannig gefst tækifæri til að skoða þessa goðsögn sportbílanna, Porsche 911, í sögulegu samhengi.

Aukinheldur munu nokkrir Porsche Macan, Cayenne og Panamera skarta sínu fegursta fyrir sýningargesti.

Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi, segir í tilkynningu: „Við erum óhrædd við að fullyrða að fátt geti jafnast á við ökuferð í Porsche á íslenskum sumardegi. Þá fá yfirburða eiginleikar bílsins að njóta sín við bestu skilyrði. Við ætlum sem sagt að framkalla Porsche fiðringinn, hinn eina sanna, á Sportbílasýningu Porsche.“

Sportbílasýningin fer fram í Porsche-salnum, Vagnhöfða 23, á morgun, laugardag, frá klukkan 12  til 16.



mbl.is