Fagna 60 ára afmæli Fiat 500

Því er fagnað á Ítalíu og víðar um þessar mundir, að 60 ár eru frá því fyrsta eintakið af 500-bílnum litla og knáa rann af færiböndum bílsmiðju Fiat.

Klúbbur eigenda Fiat 500 á Ítalíu efndi 8. júlí til síns 34. ralls í  Garlenda skammt frá Genúa. Meira en 1200 bílar mættu til leiks víðs vegar að úr Evrópu en rallið var að þessu sinni tileinkað 60 ára afmæli smábílsins dáða.

Sjón er annars sögu ríkari.

mbl.is