328% söluaukning varð á Mitsubishi Outlander tengiltvinnbílnum (PHEV) fyrstu sex mánuði þessa árs borið saman við sama tímabil í fyrra.
Mitsubishi Outlander PHEV er einn af þeim bílum sem seldir eru á 100 ára afmælistilboði Mitsubishi en um er að ræða vistvænan tengiltvinnbíll sem gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni. Fyrstu sex mánuðina seldust 227 eintök af bílnum.
Í tilkynningu frá bílaumboðinu Heklu segir að einn af hverjum fjórum rafbílum sem seldust á landinu fyrstu sjö mánuðum ársins séu af gerðinni Outlander PHEV og tæplega helmingur allra nýskráðra rafmagns- og tengiltvinnbíla komi frá Heklu.
„Það hefur verið gaman að fylgjast með endurkomu Mitsubishi síðustu misserin en þessir bílar hafa alltaf átt pláss í hjarta Íslendinga sem kunna að meta gæði og gott verð. Nú í kringum 100 ára afmælið er þetta enn skemmtilegra að sjá,“ segir Haraldur Ársælsson, vörustjóri Mitsubishi.