Metfé fyrir bíl McQueen

Porsche 917 K sem Steve McQueen ók í myndinni um …
Porsche 917 K sem Steve McQueen ók í myndinni um Le Mans.

Porsche 917 sem bandaríski leikarinn Steve McQueen ók í kvikmyndinni um sólarhringskappaksturinn í Le Mans í Frakklandi var seldur á uppboði í vikunni fyrir metfé.

Nýjum eiganda var sleginn bíllinn á 14,1 milljón dollara, sem jafngildir 1,5 milljörðum íslenskra króna.

Goðsögn úr kappakstursíþróttum, Jo Siggert, keypti 917 K-024 bílinn splunkunýjan beint frá Porsche og lánaði McQueen hann til kvikmyndunarinnar sem átti sér stað árið 1970.

Bílasafnari að nafni Jean-Pierre Clement eignaðist bílinn árið 2002 og lét klassa hann upp og var hann því í einkar góðu ástandi. Hann hefur ekkert verið brúkaður í millitíðinni. Var hann seldur á uppboði hjá Gooding & Company í Pebble Beach í Kaliforníu í síðustu viku.

mbl.is