Vegleg Mercedes-Benz bílasýning

S-Class er mjög vel búinn lúxusbíll og þægindi eru eins …
S-Class er mjög vel búinn lúxusbíll og þægindi eru eins og best verður á kosið.

Bílaumboðið Askja mun halda veglega bílasýningu á morgun laugardag kl. 12-16 í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Krókhálsi 11.

Allur bílafloti Mercedes-Benz verður til sýnis en stjarna sýningarinnar er nýr og breyttur S-Class lúxusbíll sem verður kynntur í fyrsta skipti á Íslandi. Einnig verða A-Class, CLA og GLA í forgrunni á sýningunni.

S-Class er flaggskip Mercedes-Benz og talinn tæknivæddasti fjöldaframleiddi bíllinn í heiminum, segir í  tilkynningu.

S-Class er mjög vel búinn lúxusbíll og þægindi eru eins og best verður á kosið. Hann er mjög vel búinn aksturs- og öryggiskerfum og með hátæknivæddan búnað sem gerir það að verkum að bíllinn getur stýrt sér að miklu leyti sjálfur þótt ökumaður sitji vissulega í ökumannssætinu og passi upp á að allt sé í lagi.

Bíllinn getur einnig lagt sjálfur í stæði. Aðalmunurinn á nýjum S-Class liggur undir húddinu en bíllinn hefur fengið nýjar vélar bæði í bensín- og dísilútfærslum. Þá verður einnig í boði Plug-in Hybrid útfærsla af S-Class.

mbl.is