Tvinnbílar Lexus sýndir

Á morgun, laugardaginn 23. september kl 12 – 16 sýnir Lexus Hybrid línu sína í Lexussalnum, Kauptúni 6 í Garðabæ. Þar verður gott úrval fólksbíla og sportjeppa sem allir eru búnir hybridkerfi, þ.e. með vél og rafmótor í aflrásinni.

„Lexus Hybrid Drive sameinar spennandi kraftinn í öflugri bensínvél og sparneytni rafmótorsins án þess að nokkru sinni þurfi að stinga í samband – og skiptir snurðulaust á milli þessara tveggja aflgjafa á meðan ekið er. Hröðunin er því kraftmikil, eldsneytisnotkun lítil og útblástur koltvísýrings umtalsvert minni,“ segir í tilkynningu.

Lexus er eini bílaframleiðandinn sem býður tvinnbíla í öllum gerðum hvort sem um er að ræða rúmgóðan lúxusbíl eða kraftmikinn sportbíl.

Sýningin á morgun, laugardag, fer fram í nýjum sýningarsal Lexus sem tekinn var í notkun sl. vor.

mbl.is