Discovery Jamie Oliver er eldhús á hjólum

Stjörnukokkurinn og sjónvarpsþáttastjórnandinn Jamie Oliver fékk sér á dögunum nýjan Land
Rover Discovery. Það út af fyrir sig væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá sök hvernig jeppinn er útbúinn.

Oliver pantaði nefnilega ekki þessa hefðbundnu aukahluti sem hægt er að
fá með nýjum bílum – heldur var málið að fá bílinn útbúinn með fullkomnu eldhúsi.

Það sem þetta var vægast sagt óvenjulegt verkefni lögðust Jamie Oliver og sérfræðingar Land
Rover yfir alls kyns teikningar til að hanna breytingina á bílnum og afraksturinn má sjá á
myndskeiði sem fylgir þessari frétt.

Smjörgeymsla í felgunum

„Segja má að útkoman endurspegli ekki síður hversu sveigjanleg og notadrjúg hönnun hins nýja og breytta Dicovery er, jafnvel gagnvart óskum þeirra sem gera allra mestu kröfurnar. Í þeim flokki er án efa Jamie Oliver enda heimsþekktur fyrir snilli sína á matreiðslusviðinu,“ segir í tilkynningu.

Eftir breytinguna er Land Rover Discovery Jamie Oliver búinn ísgerðarvél, lokuðum
hægeldunarpotti undir vélarhlífinni, grilli, skammtara fyrir ólívuolíu, pastagerðarvél,
geymsluhólf til að viðhalda grænmeti fersku, kryddhillu, útdraganlegu matar- og vinnuborði
með gaseldavél, vaski og eldhúskrana og flatskjá við enda borðsins. Bíllinn er meira að segja
með brauðsrist á milli framsætanna. En ekki nóg með það, hann er með lítinn innbyggðan
rafmótor fyrir innan framgrillið sem er fyrir grilltein til að heilgrilla hráefnið. Í hjólkoppum er
svo 5 lítra smjörgeymsla.

Forfallinn

Jamie Oliver er forfallinn aðdáandi Land Rover og það var sérstök deild innan fyrirtækisins,
Jaguar Land Rover’s Special Vehicle Operations, sem hannaði breytinguna í samráði við
Oliver sem lengi gekk með þennan draum í maganum. Bíllinn er vissulega einstakur en sjón er sögu ríkari eins og fram kemur í myndbandinu.

„Land Rover veitti mér tækifæri til að ganga ótrúlega langt í óskum mínum um draumaeldhús
mitt á hjólum. Ég gekk með stóra drauma í maganum og bað um margt og verkið sem
sérfræðingar Jaguar Land Rover skiluðu af sér fór fram úr öllu sem mér hefði dottið í
hug,“ sagði Jamie Oliver þegar hann fékk bílinn afhentan.

Hann segir að handbragðið sé sannkallað listaverk. „Mér datt ekki í hug að þeir gætu komið fyrir hægeldunarpotti við hlið vélarinnar eða olíuskammtaranum í farangursgeymslunni. Útkoman er æðislegur Discovery sem er sérstaklega sniðinn að þörfum mínum og fjölskyldunnar. Nú hefst nýr kafli í lífi mínu sem matreiðslumanns,“ sagði Jamie Oliver.

mbl.is