Sýning á Fiat og Alfa Romeo

Nýr Fiat 500 verður til sýnis og reynsluaksturs á sýningunni.
Nýr Fiat 500 verður til sýnis og reynsluaksturs á sýningunni.

Íslensk-Bandaríska heldur Fiat og Alfa Romeo bílasýningu næstkomandi laugardag, 14. október, í sýningarsal fyrirtækisins að Þverholti 6, Mosfellsbæ.

Þar verða sýndir nýjustu Fiat Tipo bílarnir í stallbaks- og langbaks útgáfu.  Fjórhjóladrifnir Fiat Panda Cross og Fiat 500X og síðast en ekki síst hinn goðsagnakenndi  Fiat 500.

Fiat Professional atvinnubílarnir Fiat Fiorino, Fiat Doblo og Fiat Ducato verða líka sýndir.

Allir þeir sem kaupa eða panta nýjan Fiat í október mánuði fá vetrarpakka í kaupauka sem innifelur vetrardekk, gúmmímottur og þjónustuskoðun í tvö ár. Fiat fólks- og atvinnubílar eru allir með 5 ára ábyrgð.

„Samhliða Fiat sýningunni mun Íslensk-Bandaríska sýna sport og lúxusjeppann Stelvio frá Alfa Romeo.  Stórglæsilegur og mjög vel útbúinn bíll með einstaka og sportlega aksturseginleika  sem ávallt hefur verið einkenni Alfa Romeo bíla. Á dögunum setti Stelvio hraðamet á þýsku Nürburgring kappakstursbrautinni og er hann þar með orðinn hraðskreiðasti fjöldaframleiddi jeppinn.  Stelvio er boðinn með 5 ára ábyrgð,“ segir í tilkynningu um sýninguna.

Sýning er opin frá klukkan 12 til 16 og verður boðið upp á hressingu; ítalskt Lavazza eðalkaffi, Egils Appelsín og kúluís frá ísbúðinni Valdísi.

Á meðan sýningunni stendur verður Skallatenniskeppni Fiat og Áttunar FM á útisvæði.  Í stað hefðbundins nets sem notað er í skallatennis, munu keppendur skalla yfir Fiat 500 bíl.  Veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara og er öllum heimil þátttaka í keppninni.

mbl.is