ÍR og Hekla hf í samstarf

Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu og Þorsteinn Magnússon ritari aðalstjórnar ÍR …
Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu og Þorsteinn Magnússon ritari aðalstjórnar ÍR handsala samstarfssamninginn á milli ÍR og Heklu.

ÍR (Íþróttafélag Reykjavíkur) og Hekla hf. hafa gert með sér samstarfssamning sem undirritaður var með viðhöfn á fyrsta heimaleik karlaliðs ÍR í úrvalsdeild í körfubolta 12. október í íþróttahúsi Seljaskóla. Samningurinn er að sögn samningsaðila mikið fagnaðarefni og undirstrikar mikilvægi samstarfsaðila í íþróttastarfi og viðskiptum.

Samstarfssamningurinn er sá stærsti sem aðalstjórn ÍR hefur gert um margra áratuga skeið, að því er segir í fréttatilkynningu.

Samstarfssamningur ÍR og Heklu á án efa eftir að verða mikil lyftistöng fyrir starfsemi ÍR sem fer vaxandi með hverju árinu. Iðkendur ÍR eru um 2.500 talsins á ársgrundvelli og tíu íþróttagreinar eru stundaðar hjá félaginu. Stuðningur Heklu skiptir miklu máli fyrir áframhaldandi starfsemi,“ segir Ingigerður Guðmundsdóttir, formaður aðalstjórnar ÍR.

Nágrannar í náinni framtíð

Gangi allt eftir verða Hekla og ÍR nágrannar, enda hefur okkur verið úthlutað byggingarlóð fyrir höfuðstöðvar okkar í Suður-Mjódd, rétt við hlið íþróttasvæðis ÍR. Við höfum alltaf stutt íþróttastarf af heilum hug og það er okkur fagnaðarefni að styðja við þróttmikið starf ÍR,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu.

Það voru þeir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu og Þorsteinn Magnússon ritari aðalstjórnar ÍR sem undirrituðu samstarfssamninginn á milli ÍR og Heklu.

mbl.is