Metanbílar frá Heklu aldrei vinsælli

Tuttugu ár eru frá því að Hekla hóf innflutning á metanbílum en það var árið 1997 sem innflutningur hófst á metanknúnum Volkswagen Caddy og Volkswagen Touran.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Hekla býður í dag upp á fjölbreytt úrval bíla sem ganga bæði fyrir metani og bensíni. Má þar nefna Skoda Octavia, Volkswagen Caddy, Volkswagen Golf, Volkswagen up!, Volkswagen Polo, Audi A3 og Audi A5.

Alls hafa 1.246 metanbílar selst síðustu fimm árum og frá ársbyrjun 2016 er búið að nýskrá 648 metanbíla, eða 24% af öllum nýskráðum vistvænum bílum, samkvæmt upplýsingum frá Heklu. Vistvænir bílar frá umboðinu eru orðnir 953 það sem af er ári og er það 15% fjölgun miðað við allt árið í fyrra.

„Við höfum góða reynslu af sölu metanbíla sem og annarra vistvænna bíla. Þeir bílaeigendur sem prófa metanbílana eru almennt mjög ánægðir og það bætast sífellt fleiri í þann hóp ánægðra viðskiptavina. Hekla er leiðandi í vistvænum farkostum og við munum halda áfram að bjóða upp á fjölmarga og fjölbreytta kosti á sviði vistvænna bíla. Við hlökkum til að bjóða upp á nýja kosti á komandi misserum,“ segir María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdarstjóri sölusviðs hjá Heklu í tilkynningu.

mbl.is