Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot 5008

Brimborg frumsýnir Peugeot 5008 næstkomandi laugardag, 18. nóvember, milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Peugeot hjá Brimborg að Bíldshöfða 8. 

Nýr Peugeot 5008 SUV er 7 sæta, rúmgóður bíll með fjölhæfu og notendavænu farþegarými. Peugeot 5008 er stóri bróðir Bíls ársins á Íslandi 2018, Peugeot 3008.

Í tilkynningu segir, að innra rými Peugeot 5008 SUV veiti frelsi til þess að haga sætunum og laga farangursrýmið að þörfum hvers og eins. Rýmið sé vel skipulagt með stökum niðurfellanlegum sætum og flötu gólfi.

Hönnun með tilgang

Ökumannsrými Peugeot 5008 er hannað með þægindi bílstjórans í huga. Há sætisstaða, stór framrúða og nett stýri veita ökumanni góða sýn framá veginn ásamt þægilegum og skemmtilegum akstri. Hönnun á rýminu einfaldar ökumanni allan aðgang að stjórntækjum og veitir góða yfirsýn yfir stjórnborðið.

Nýr Peugeot 5008 er fáanlegur með Panorama glerþaki sem hleypir náttúrulegri birtu inn í bílinn. Á auðveldan hátt er hægt að draga skyggni fyrir glerþakið.

Þrír barnastólar og stórt farangursrými

Farangursrýmið er sérlega rúmgott fyrir bíl í þessum flokki, eða 952 lítrar með öftustu sætin niðurfelld. Einnig er hægt að fella farþega sætið að framan niður svo hægt sé að koma fyrir hlutum allt að 3,2 m að lengd.

Í nýjum Peugeot 5008 eru þrjú stök sæti í aftari sætaröð sem öll eru á sleðum og með Isofix festingum þannig að auðveldlega komast fyrir þrír barnastólar í sömu röðinni.

Á frumsýningunni er í boði reynsluakstur á Peugeot 5008. Þar verður og boðið uppá kaffi frá Kaffitár og gómsætar makkarónur með.

Samkvæmt upplýsingum frá Brimborg kostar nýr Peugeot 5008 frá 4.090.000 krónum.

mbl.is