Fjórföld frumsýning hjá Heklu

Á morgun laugardag verður fjórföld frumsýningarveisla hjá Heklu þegar frumsýndir verða fjórir  bílar frá Volkswagen; sjö manna Tiguan Allspace, sendibíll ársins, Volkswagen Crafter, lúxusbílinn Arteon og nýr gjörbreyttur og stærri Volkswagen Polo.

Sjöttu kynslóðar Volkswagen Polo hefur verið beðið eftir í nokkurn tíma og þykir hún hafa heppnast einkar vel en Polo fagnar 42 ára afmæli sínu um þessar mundir. „Hann hefur stækkað töluvert, er sportlegur og ljómar af sjálfsöryggi. Hann er traustur farkostur, fallegur og góður í akstri,“ segir í tilkynningu frá Heklu.

Volkswagen Tiguan Allspace er ný útgáfa af Tiguan og fæst sjö manna. Hann býr yfir enn meira plássi, er enn fjölskylduvænni og enn betri en áður. Þrjár sætaraðir eru í Tiguan Allspace en ef þriðja sætaröðin er felld niður er gríðarstórt 760 lítra farangursrými í bílnum. Hægt verður að reynsluaka honum á frumsýningunni á morgun.

„Með nýja Arteon kynnir Volkswagen til sögunnar sannkallaðan lúxusbíl með sterkum og einkennandi svip sem gæðir sérhvern dag meira lífi. Straumlínulagaðar hliðar, rammalausir hliðargluggar, svipsterkur afturhluti – Arteon grípur augað hvert sem litið er,“ segir einnig í tilkynningunni.

Nýr Volkswagen Crafter er sendibíll ársins. Hann er sparneytinn, hagkvæmur og áreiðanlegur og býður upp á hagnýtar lausnir fyrir daglega notkun sem uppfylla ólíkar væntingar viðskiptavina. Hann er í boði með 8 þrepa sjálfskiptingu og fram-, aftur- og fjórhjóladrifi.

„Okkur þykir einkar skemmtilegt að geta frumsýnt saman þessa ólíku bíla á morgun og sýna þá breidd sem Volkswagen býður upp á. Við höfum beðið spennt eftir að geta sýnt þessar nýjungar. Við teljum að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi hjá okkur og hvetjum fólk til að líta við,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, sölustjóri Volkswagen.

 Frumsýningin stendur yfir frá klukkan 12 til 16.

mbl.is