Ný Insignia frumsýnd hjá Benna

Nýr Opel Insignia verður frumsýndur bæði fjögurra dyra og í …
Nýr Opel Insignia verður frumsýndur bæði fjögurra dyra og í langbaksútgáfu.

Bílabúð Benna frumsýnir nýjan Opel Insignia á morgun, laugardaginn 18. nóvember, frá klukkan 10 til 16.

Í tilkynningu segir að ný Insignia sé endurhönnuð frá grunni, en byggi eftir sem áður alfarið á þýsku hugviti og þeim kostum sem gera þýska bíla eftirsótta um allan heim.

Samkvæmt áætlunum Opel er Insignia undanfari nýrrar kynslóðar, þar sem djarfar línur, jafnt að innan sem utan, fái að njóta sín til fulls, án þess þó að það bitni á innra rými bílsins.

Lögð er sérstök áhersla á hversu rúmgóð Insignia er. Allir fái nóg pláss til að njóta ökugleðinnar hvar sem þeir sitja í bílnum.

„Aksturseiginleikar Insignia eru líka rómaðir og bíllinn því einsog sniðinn fyrir þá sem elska að keyra góða og glæsilega bíla,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Nýr Insignia fæst bæði  fjögurra dyra, Grand Sport, útgáfu og í langbaksútgáfu. Frumsýningin verður bæði að Tangarhöfða 8 í Reykjavík og Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ.

mbl.is