Næstkomandi fimmtudagskvöld, 23. nóvember, verður opið hjá Toyota í Kauptúni til kl. 22. Þá verður aðeins 31 dagur til jóla og þess vegna verður 31 Toyota bíll boðinn á sjaldséðu tilboðsverði.
Í tilkynningu segir að Toyota ætli einnig að auðvelda viðskiptavinum sínum jólaundirbúninginn með því að bjóða sérstakan jólakaupauka. Með öllum seldum bílum á sýningunni fylgir 100.000 kr. gjafakort í Smáralind og jólaveisla frá Krónunni.
„Forskot verður tekið á notalega jólastemmningu með hressingu í mat og drykk og góðri tónlist. Tilvalið er að kíkja í leiðinni í verslunina hjá Toyota Kauptúni. Þar verða frábær tilboð í tilefni af svörtum föstudegi,“ segir í tilkynningunni.