BL innkallar Range Rover

mbl.is/Ófeigur

BL hefur innkallað 18 bifreiðar af gerðinni Range Rover og Range Rover Sport, árgerð 2017. Ástæða innköllunar er sú að skyndilega getur slökknað á mælaborðinu. Þegar þetta gerist koma engar upplýsingar fram í mælaborðinu en það kviknar á því aftur í akstri. 

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu. Þar segir enn fremur að  BL muni hringja í eigendur vegna þessarar innköllunar. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við BL ef þeir eru í vafa. 

Range Rover - Reynslu akstur
Range Rover - Reynslu akstur Ófeigur Lýðsson
mbl.is