Bílabúð styrkir Mæðrastyrksnefnd

Margrét Beta Gunnarsdóttir frá Bílabúð Benna, Anna H. Pétursdóttir, formaður …
Margrét Beta Gunnarsdóttir frá Bílabúð Benna, Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd og Benedikt Eyjólfsson frá Bílabúð Benna.

Bílabúð Benna styrkir 100 fjölskyldur um jólin í stað jólagjafa til viðskiptavina, eins og  fyrirtækið hefur gert undanfarin ár.

Færði bílabúðin Mæðrastyrksnefnd hamborgarhryggi til gjafa til skjólstæðinga, en nefndin hefur lengi gengt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi.

„Þrátt fyrir uppgang í þjóðfélaginu er þörfin brýn fyrir aðstoð við fjölskyldur og einstaklinga, nú sem endranær og því gefandi fyrir okkur að geta lagt þessu málefni lið,“ sögðu hjónin Margrét Beta Gunnarsdóttir og Benedikt Eyjólfsson, við afhendingu á  hamborgarhryggjum frá Ali, til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.

mbl.is