Styrkja björgunarsveitir

Brimborg styrkir björgunarsveitir í ár sem áður.
Brimborg styrkir björgunarsveitir í ár sem áður.

Brimborg hefur í mörg ár átt farsælt samstarf við björgunarsveitir og styrkir árlega Hálendisvakt björgunarsveitanna. Því verður haldið áfram í ár.

Styrkir bílaumboðið björgunarsveitirnar með kaupum á flugeldum fyrir 6.000.000 krónur frá Hjálparsveit skáta. Starfsmenn  Brimborgar munu því kveðja árið með litríkum áramótasprengjum.

„Styrkir frá fyrirtækjum eins og Brimborg eru afar mikilvægir okkar starfsemi til viðbótar við aðra fjáröflun björgunarsveitarinnar. Þessir fjármunir munu án efa nýtast afar vel í okkar mikilvægu starfsemi og verður varið í þágu landsmanna allra“, segir Brynjar Jóhannesson hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík.

Þakklát fyrir gott gengi

„Við hjá Brimborg erum afskaplega þakklát og stolt af góðu gengi fyrirtækisins en starfsmenn félagsins hafa náð einstökum árangri á árinu sem er að líða. Velta Brimborgar fer í fyrsta skipti yfir 20 milljarða króna, afkoman er frábær og met verður sett í fjölda nýskráninga af tegundum Volvo, Ford, Mazda, Citroën og Peugeot en yfir 3500 bílar verða skráðir á árinu. Á heildarmarkaði er sjötti hver bíll af bílamerki Brimborgar og á markaði án bílaleigubíla er hlutdeildin 17,2%. Mjög góður gangur hefur einnig verið í sölu vörubíla, vinnuvéla, bátavéla og rúta frá Volvo ásamt því að met verður slegið í útleigu bíla hjá Thrifty og Dollar, bílaleigum Brimborgar,“ segir í tilkynningu.

mbl.is