Hátíð til heiðurs Vigdísi

Ríkisstjórnin samþykki í morgun að veita 4 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til hátíðardagskrár sem haldin verður á Arnarhóli sunnudaginn 28. júní nk. Hátíðin er haldin í tilefni þess að hinn 29. júní 2015 verða 35 ár liðin frá sögulegu kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands.

Fyrir viðburðinum fer Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum í samvinnu við Alþingi, Reykjavíkurborg, Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og fjölmörg samtök. Skipuð hefur verið framkvæmdanefnd, sem mun bera ábyrgð á undirbúningi viðburðarins, og mun Lilja D. Alfreðsdóttir, verkefnisstjóri í forsætisráðuneyti, taka sæti í framkvæmdanefndinni fyrir hönd stjórnvalda, segir í tilkynningu.

Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg og Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hafa heitið fjárhagslegum stuðningi við verkefnið, alls 4 til 5 milljónum króna, en áætlað er að heildarkostnaður nemi um 16-18 milljónum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert