Sigríður Klara nýr forstöðumaður

Dr.Sigríður Klara Böðvarsdóttir.
Dr.Sigríður Klara Böðvarsdóttir. Ljósmynd Stefán Valsson

Dr. Sigríður Klara Böðvarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður lífvísindaseturs Háskóla Íslands.  
 
Sigríður Klara lauk BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1995, MS-prófi í plöntuerfðafræði árið 2000 og doktorsprófi í líf- og læknavísindum árið 2008, hvort tveggja frá sama skóla. Sigríður Klara hefur um árabil lagt stund á grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini, m.a. á Rannsóknastofu Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði og við Háskóla Íslands. Frá árinu 2013 hefur Sigríður Klara gegnt stöðu rekstrarstjóra Lífvísindaseturs samhliða rannsóknum sínum, samkvæmt tilkynningu frá HÍ.
 
Lífvísindasetur er samstarfsvettvangur vísindamanna í lífvísindum við Háskóla Íslands og samstarfsstofnana. Meginmarkmið setursins er að byggja upp kjarnaeiningar í tækjakosti og aðferðafræði sem nýtist sem flestum og efla þar með rannsóknir og slagkraft íslensks vísindasamfélags á sviði lífvísinda. 
 
Hlutverk forstöðumanns Lífvísindaseturs er einkum að hafa umsjón með daglegum rekstri auk þess að efla rannsókna- og þróunarstarf innan setursins. Í því felst m.a. fjáröflun og aðstoð við gerð styrkumsókna, umsjón fjármála og útboða t.d. vegna tækjakaupa og reksturs, kynningarstarf og umsjón og ábyrgð á fræðsluverkefnum á vegum stofnunarinnar. Uppbygging Lífvísindaseturs hefur gengið vel að undanförnu og tækjabúnaður aukist talsvert, meðal annars með styrkfé frá Innviðasjóði Vísinda- og tækniráðs. Eitt af mörgum verkefnum Sigríðar Klöru verður að leiða stefnumótun um hvernig viðhaldi tækjanna skuli háttað.
  
Við Lífvísindasetur starfa um 50 rannsóknahópar og heildarfjöldi starfsmanna er vel á annað hundrað. Þar á meðal er fjöldi nýdoktora og nemenda, bæði innlendra og erlendra meistara- og doktorsnema.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert