Thom Yorke, söngvari hljómsveitarinnar Radiohead, hefur staðfest að hljómsveitin hafi hafið upptökur á sjöundu breiðskífu hljómsveitarinnar. Söngvarinn skrifaði á vefsíðu sveitarinnar þar sem hann fjallaði um umhverfisverndarherferðina Big Ask, að sveitin væri “að taka upp fyrir alvöru loksins”. Síðasta plata sveitarinnar kom út fyrir þremur árum, en Yorke gaf hins vegar út plötu á eigin spýtur fyrr á þessu ári.