Búist er við því að Elísabet Englandsdrottning og eiginmaður hennar, Filippus prins, mæti til heimsfrumsýningar á Casino Royale, nýjustu kvikmyndinni um njósnara hennar hátignar James Bond. Handrit kvikmyndarinnar er unnið upp úr fyrstu sögu rithöfundarins Ian Fleming um njósnarann og er ein fárra sem græjukarlinn Q og ritarinn Moneypenny koma ekki við sögu í.
Casino Royale verður sýnd í þremur kvikmyndahúsum við Leicester-torg í Lundúnum. Daniel Craig, sem fer með hlutverk Bond, segir Dr. No og From Russia with Love sínar uppáhalds James Bond kvikmyndir og segist hann bera mikla virðingu fyrir Sean Connery sem fyrstur túlkaði njósnarann. BBC segir frá þessu.