Kvikmyndin Babel, sem gerist m.a. í Marokkó, Mexíkó og Tókýó, fékk flestar tilnefningar, eða sjö talsins, til Golden Globe verðlaunanna sem veitt eru árlega í Hollywood fyrir kvikmyndir og sjónvarpsefni. Myndin var meðal annars tilnefnd sem besta dramatíska kvikmyndin og Brad Pitt og Rinko Kikuchi fengu tilnefningar fyrir leik í myndinni.
Myndirnar The Queen, Bobby, The Departed og Little Children voru einnig tilnefndar sem bestu dramamyndirnar. Sem bestu gaman- eða söngvamyndir voru tilnefndar Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan, The Devil Wears Prada, Dreamgirls, Little Miss Sunshine og Thank You for Smoking.
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna eru fjölmargar enda eru flokkarnir fjölbreytilegir. Meðal annars fékk Helen Mirren tilnefningu fyrir að leika bæði Elísabetu I og Elísabetu II Englandsdrottningar, þæa fyrrnefndu í sjónvarpsþáttum og þá síðarnefndu í myndinni The Queen. Hún var einnig tilnefnd fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Prime Suspect: The Final Act.
Clint Eastwood var tilnefndur sem besti leikstjóri fyrir myndir sínar Flags of Our Fathers og Letters from Iwo Jima. Leonardo DiCaprio fékk tvær tilnefningar fyrir leik í myndunum Blood Diamond og The Departed. Hann keppir um verðlaun í þeim flokki við Peter O'Toole, sem er tilnefndur fyrir leik sinn í Venus, Will Smith, sem er tilnefndur fyrir The Pursuing of Happyness, og Íslandsvininn Forest Whitaker, sem hlýtur tilnefningu fyrir The Last King of Scotland.
Spænska þokkadísin Penélope Cruz er tilnefnd sem besta leikkonan fyrir kvikmyndina Volver, en hún hefur verið sterklega orðuð við Óskarsverðlaunin fyrir frammistöðu sína. Hún etur kappi um verðlaunin við Judi Dench (Notes on a Scandal), Maggie Gyllenhaal (Sherrybaby), Kate Winslet (Litle Children) og svo Mirren.
Golden Globe-verðlaunin verða afhent í Los Angeles 15. janúar nk. Listi yfir tilnefningarnar