Matthew McConaughey er „piparsveinn ársins“ að dómi bandaríska tímaritsins People. McConaughey er gjarnan myndaður ber að ofan að æfa sig á baðströnd og segist elska sumar og sól. Í nýjasta hefti tímaritsins, sem kemur út í dag, eru valdir „heitustu piparsveinarnir.“
McConaughey er 37 ára og segist ekki stunda reglulega líkamsrækt, en það sé þó markmið sitt að svitna á hverjum einasta degi. Hann hefur m.a. leikið í kvikmyndunum Failure to Launch og Sahara.