Tukthúslimurinn París Hilton segist þjást af innilokunarkennd, en að tíminn í fangelsi hafi endurvakið þakklæti hennar á einföldum hlutum lífsins. „Ég er svo þakklát fyrir allt sem ég á, jafnvel bara að eiga kodda eða mat,“ sagði hún í símaviðtali við sjónvarpsþáttinn E! á föstudaginn. Hægt er að nálgast símaviðtalið á heimasíðu E!