Allt frá því að David Beckham og frú urðu góðvinir Hollywood-hjónanna Toms Cruise og Katie Holmes hafa aðdáendur knattspyrnugoðsins beðið eftir því með hnút í maganum að Beckham-hjónin snúist til vísindatrúar. Það mun hins vegar ekki vera á dagskrá ef marka má orð kunningja Davids Beckhams sem segir að þau Tom og Katie hafi aldrei reynt að boða þeim vísindatrú. Segir hann að David og Victoria virði trúarbrögð þeirra og önnur hugðarefni en það sé einfaldlega ekki merki um mikla vináttu að þröngva sinni eigin trú upp á á aðra. En Cruise og Holmes eru ekki eina frægðarparið í Hollywood sem Beckham-hjónin kalla vini sína. David og tónlistarmaðurinn Marc Anthony sem er giftur Jennifer Lopez, eru víst orðnir miklir mátar. Í viðtali við Arena-tímaritið sagði Beckham: "Við tölum um allt mögulegt. Hvað sé á döfinni þessa vikuna eða þennan daginn. Hvað Jennifer sé að baksa við eða hvað Victoria sé að gera. Ég tala við hann að minnsta kosti þrisvar til fjórum sinnum í viku."