Ferill Britney Spears er enn á niðurleið og sér ekki fyrir endann á hrapi stjörnunnar. Nýjustu fréttir herma að nú sé auglýst eftir staðgengli Spears fyrir nektarmyndatöku á vegum tímaritsins Blender.
Líkami söngkonunnar hefur látið á sjá síðustu árin og þykir ekki lengur nýtilegur efniviður í æsandi myndefni. Hugmyndin mun vera að mynda höfuð hennar og líkama staðgengilsins og skeyta svo líkamshlutunum saman í tölvu. Afraksturinn á að vera eftirgerð af frægum myndum Bert Stern af kvikmyndastjörnunni Marilyn Monroe sem teknar voru stuttu fyrir andlát hennar.
Kröfurnar sem gerðar eru til staðgengilsins eru þær að viðkomandi sé á milli 160 og 170 cm á hæð, með millisítt ljóst hár og á aldrinum 18 til 25 ára. Algjört skilyrði er að vera í góðu formi og mun sú sem verður fyrir valinu hljóta um 30 þúsund krónur fyrir ómakið.