Óstaðfestar heimildir eru fyrir því að Jennifer Lopez hafi skráð sig inn á fæðingardeild Long Island's North Shore-háskólasjúkrahússins í gær, en söng- og leikkonan á von á tvíburum með manni sínum Marc Anthony. M
eðan stjarnan dvelur á sjúkrahúsinu verður hún í einkasvítu sem starfsfólk spítalans hefur ekki mátt koma inn í undanfarnar tvær vikur. Í svítunni er að finna viðarparket, leðursófa og tvo risavaxna plasmasjónvarpsskjái.
J-Lo þarf víst ekki að sætta sig við hina venjulegu sjúkrahússloppa heldur verður hún í sérhönnuðum kremuðum kjól og slopp í stíl.