Britney Spears gefur út nýtt tónlistarmyndband í dag, en um er að ræða teiknimynd þar sem Britney er ofurhetja í framtíðinni. Lagið er „Break the Ice,“ sem er þriðja lagið af nýjasta disknum hennar, Blackout, sem kemur út með myndbandi.
Teiknimyndbandið verður birt á vefnum BlackoutBall í kvöld. Það var framleitt í Suður-Kóreu, og er í japönskum stíl.
Blackout hefur selst í rúmlega tveim milljónum eintaka síðan hann kom út í fyrra, en það telst ekki mikil sala miðað við það sem gerðist er Britney var á hátindi vinsældanna fyrir sex árum.