Sögur herma að rapparinn og fjárfestirinn Jay-Z sé að gera samning við tónlistarfyrirtækið Live Nation upp á 150 milljónir Bandaríkjadala, 11,2 milljarða króna. Ef af samningnum verður er það einn stærsti samningur sem hefur verið gerður við tónlistarmann, samkvæmt frétt Reuters.
Samkvæmt frétt New York Times er samningurinn sá fyrsti sem Live Nation gerir við rappara.
Jay-Z var á síðasta ári annar tekjuhæsti tónlistarmaður Bandaríkjanna
samkvæmt Forbes-tímaritinu með tekjur upp á 83 milljónir Bandaríkjadala.