Lið Menntaskólans í Reykjavík fór með sigur af hólmi í úrslitakeppni MORFÍS í Háskólabíói í kvöld en liðið mætti liði Menntaskólans í Hamrahlíð. Ræðumaður Íslands kom hins vegar úr liði MH, Birkir Blær Ingólfsson. Umræðuefni kvöldsins var áróður. Ræðuliðin hafa háð stríð seinustu daga og hefur þar ýmsum bolabrögðum verið beitt, misgrófum þó.