Björk Guðmundsdóttir hóf í gær með tónleikum í Manchester hljómleikaferð um Bretlandseyjar. Framundan eru níu tónleikar víðsvegar um Bretland en þar af heldur Björk þrenna tónleika í Hammersmith Apollo í London. Óhætt er að segja að mikill spenningur sé fyrir tónleikaferðalagi Bjarkar í Bretlandi og nýtt myndband við lagið „Wonderlust“ hefur fengið gríðarlega mikla umfjöllun í fjölmiðlum ytra og á netinu enda sérlega áhugavert þrívíddarmyndband. Síðustu tónleikarnir fara fram í Hertfordskíri 5. júlí.