Viktoría og Davíð Beckham hafa ákveðið að senda þriggja ára son sinn, Cruz, í leikskóla gyðinga í Los Angeles. Þau hjónin skoðuðu leikskólann, sem er við bænahús í borginni, í síðustu viku og urðu að sögn ákaflega hrifin.
Haft er eftir heimildamanni að ekki sé hugmyndin að Cruz fái gyðinglegt uppeldi, heldur sé einfaldlega um að ræða einn besta leikskóla sem völ sé á í Los Angeles.
Davíð er af gyðingum kominn í móðurættina, en Sandra móðir hans er þó ekki trúrækin.