Eiginmaður Amy Winehouse, Blake Fielder-Civil, krefst þess að fá greiddar 3 milljónir punda við skilnaðinn en eins og fram hefur komið hefur Winehouse farið fram á skilnað enda komin með nýjan elskhuga. Hins vegar harðneitar Winehouse orðrómi um skilnað og segist elska Blake út af lífinu.
Blake Fielder-Civil, sem situr í fangelsi í Lundúnum, telur að hann eigi skilið að fá greidd 250 þúsund pund fyrir hvern mánuð sem hann hefur verið kvæntur söngkonunni sem ítrekað hefur komið sér í vandræði.
Nýi kærastinn heitir Alex Hayes og er aðstoðarmaður umboðsmannsins hennar. Á Winehouse að hafa sagt eiginmanninum að hún vildi skilnað og byrja nýtt líf en Hayes er ólíkur eiginmanninum. Hann reykir ekki, neytir ekki eiturlyfja og drekkur í hófi.
Breska slúðurblaðið The Sun hefur eftir heimildarmönnum að Blake hafi sagt vinum sínum að Winehouse væri dauð ef hann hefði ekki verið til staðar fyrir hana. Blake trúði því hreinlega ekki að hún vildi skilnað enda eigi hún honum allt að þakka.
En þrátt fyrir fréttir um skilnaðinn þá neitar Winehouse að nokkuð sé hæft í þeim orðrómi. Að hennar sögn er hún yfir sig ástfangin af Blake og þau eigi eftir að vera saman það sem eftir er.