Tónlistarkonuna Hafdísi Huld má nú sjá í nýrri auglýsingu fyrir Mercedes Benz. Þar sést hún aka umhverfisvænum Benz um götur Madríd og syngja lagið „Stop“ eftir Sam Brown. Um 100 leikkonur sóttu að sögn um hlutverkið í auglýsingunni, sem sjá má á myspace-síðu Hafdísar, www.myspace.com/hafdishuld.