Angelina Jolie hefur innritað sig á spítala í Suður-Frakklandi og er búist við að tvíburarnir sem hún ber undir belti líti fljótlega dagsins ljós. Jolie ku vera í góðu ásigkomulagi og gengur allt vel.
Talsmaður spítalans segir að innlögnin á fæðingardeildina hafi verið ákveðin fyrir þó nokkru síðan. Verður Jolie undir eftirliti til að byrja með og er ekki gert ráð fyrir að börnin fæðist alveg strax. Þó er ljóst að Jolie mun ekki yfirgefa spítalann fyrr en börnin eru komin í heiminn.