Cameron Diaz hefur beðið kærasta sinn að flytja inn til sín, ef eitthvað er að marka fréttir OK. Diaz og Paul Sculfor hafa verið par síðan í apríl og eyða víst hverri einustu nótt saman. Einnig berast fréttir af því að Diaz hafi sést með demant á fingri. Ætli hjónaband sé næst á dagskrá?