Allt fór á versta veg

Allt fór á versta veg þegar maður gekk út á hraðbraut í Ástralíu í nærbuxum einum fata í gær. Maðurinn, sem er 18 ára, var manaður í skræfuleik (e. chicken), en leikurinn gengur út á það hvor muni víkja á undan. Í þessu tilviki maður eða bíll.

Maðurinn liggur nú á sjúkrahúsi alvarlega slasaður eftir að jeppi ók hann niður á Tullamarine-hraðbrautinni í Melbourne. Fram kemur í yfirlýsingu frá lögreglunni að hún sé afar undrandi á því að nokkur skyldi láta sér detta slík heimskupör í hug.

Lögreglan segir að það sé lán í óláni að enginn skyldi hafa látið lífið vegna athæfis mannsins. Hún segist eiga bágt með að trúa því að nokkur skuli vera það vitlaus að taka svona mikla áhættu, bæði með sitt eigið líf og samborgara sinna.

Ökumaður og farþegi í jeppanum sluppu ómeiddir. Bifreiðin er hins vegar ónýt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is