Breski leikarinn Christian Bale verður ekki ákærður fyrir meinta líkamsárás að sögn saksóknara í Bretlandi. Bale var sakaður um að hafa ráðist á móður sína og systur á Dorchesterhótelinu í Lundúnum 21. júlí.
Að sögn saksóknara eru ekki nægar sannannir fyrir þeim ásökunum og því verði málið látið falla niður.
Mæðgurnar kærðu Bale til lögreglu og sögðu að hann hefði ráðist á þær daginn áður en nýja myndin um Leðurblökumanninn, The Dark Knight, var frumsýnd í Lundúnum en Bale fer með aðalhlutverk í myndinni.
Hann hefur neitað ásökunum.