Svo kann að fara að þau Brad Pitt og Jennifer Aniston hittist á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Toronto í næsta mánuði, tæpum þrem árum eftir að þau skildu.
Nýjar myndir beggja verða frumsýndar á hátíðinni, myndin Burn After Reading, þar sem Brad fer með aðalhlutverkið, verður sýnd 5. september, og Management, þar sem Jennifer er í aðalhlutverki, verður sýnd 7. sept.
Þau hafa ekki sést saman opinberlega síðan 2005, en fregnir herma að Jennifer hitti mömmu Brads reglulega, og mun það fara mjög í taugarnar á Angelinu Jolie.