Býður Ísland til sölu á eBay

mbl.is

Breti nokkur hefur tekið sig til og boðið Ísland til sölu á uppboðsvefnum eBay. Tekið er sérstaklega fram, að hvorki Grænland né Björk fylgi með í kaupunum.

Í norska Dagblaðinu er fjallað um málið og vísað í sölulýsingu þar sem segir m.a., að Ísland, sem Ingólfur Arnarson hafi stofnað árið 874, sé fámennast Norðurlandanna og þar búi 320 þúsund manns á 103 þúsund ferkílómetrum. Landið sé á Mið-Atlantshafshryggnum í Norður-Atlantshafi og því geti Ísland boðið upp á gott loftslag og Íslandshesta en einnig sveiflukennt efnahagslíf. 

Um miðnætti í nótt höfðu borist yfir 70 tilboð og var það hæsta 250 þúsund pund, jafnvirði um 5 milljóna.  

Frétt Dagbladet

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is