Snýr Jackson Five aftur á sjónarsviðið?

Jackson Five í þá gömlu góðu.
Jackson Five í þá gömlu góðu.

Jackson bræðurnir, sem saman mynduðu sönghópinn Jackson Five, íhuga nú að koma saman aftur á næsta ári. Þar steig konungur poppsins, Michael Jackson, sín fyrstu skref sem söngvari. 

Jermaine Jackson sagði í samtali við ástralska fjölmiðla að þeir bræðurnir, auk systur sinnar Janet Jackson, hygðust snúa aftur.

„Það er tími til kominn að Jackson fjölskyldan komi aftur saman,“ sagði Jermaine Jackson við áströlsku fréttastofuna AAP.

Hann segir að þau hafi verið að vinna að tónlistinni og allri skipulagninu í tengslum við endurkomuna.

Jackie, Tito, Jermaine, Marlon og Michael fóru síðast í hljómleikaferð árið 1984  sem The Jacksons, en þá hafði Randy Jackson bæst í hópinn. Hann var einn af upphaflegum meðlimum Jackson Five, en sveitin var stofnuð árið 1965.

Hópurinn hætti að koma fram saman þegar Michael Jackson og Janet systir hans urðu stórstjörnur á alþjóðavísu. Árið 1990 var hljómsveitin síðan leyst upp.

„Þetta mun snúast meira um fjölskylduna. Janet mun opna og, að sjálfsögðu, verða hinir upphaflegu Jackson Five - Michael, Randy og allt gengið [...] Við erum að vinna í hljóðveri og við stefnum á að vera komnir á kreik á næsta ári,“ segir Jermaine Jackson.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Steindór Ívarsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér hættir til í hita augnabliksins að missa stjórn á skapi þínu, sem er ekki gott. Gakktu hægt um gleðinnar dyr og mundu að á morgun er nýr dagur með nýjum tækifærum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Kathryn Hughes
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Steindór Ívarsson
Loka