Fregnir herma að bandaríska söngkonan Britney Spears misnoti laxerolíu og kasti upp eftir hverja máltíð. Að undanförnu hefur Britney þótt líta betur en hún hefur gert um langt skeið, og í viðtölum hefur hún þakkað þann árangur góðu mataræði og reglulegri hreyfingu. Nú hefur hins vegar einn lífvarða hennar sagt að hún þjáist af lystarstoli.
„Hún borðar mest á skyndibitastaðnum Taco Bell, og skolar matnum niður með Red Bull-orkudrykk. Svo kastar hún upp eftir hverja máltíð, hvort sem hún er heima hjá sér eða á veitingastöðum, og hún er ekkert að reyna að fela það. Nánustu ættingjar hennar og vinir telja að hún þjáist af búlimíu,“ sagði góður vinur eins af lífvörðum hennar í samtali við bandaríska tímaritið Star.
Þá mun því einnig hafa verið haldið fram að hin 26 ára gamla söngkona noti hin ýmsu lyf til að halda kílóunum í lágmarki.